Sirkus Sóley

Sirkus Sóley er spennandi sirkussýning þar sem fjör og dirfska ráða för í jafnvægislistum, gripli, húllahringjum, loftfimleikum og auðvitað sprella trúðarnir. Búast má við krassandi sirkusatriðum, áhættuatriðum og vænum brögðum sem aldrei hafa sést áður á Íslandi.

Sirkus Sóley er önnur fjölskyldusýning Sirkus Íslands.