Í sirkusnum eru nokkrir blöðrulistamenn og andlitsmálarar sem taka að sér að koma á hátíðir, afmæli og fleira til að hnýta blöðrudýr eða mála andlit.
Það er ekki bara gaman að sjá full-snúin blöðrulistaverkin, einnig er skemmtilegt að fylgjast með listamanninum hnýta blöðrurnar saman á óskiljanlegan hátt.
Mikill metnaður er lagður í andlitsmálninguna og börn sem fullorðnir breytast í hinar ýmsu kynjaverur eins og töfrum hafi verið beitt.
Litirnir sem eru notaðir eru ofnæmisprófaðir, nást auðveldlega af og innihalda engin bönnuð paraben efni.
Frábær viðbót við flotta hátíð, þar sem allir geta fengið furðuverk að eigin ósk.