Róló

Sirkuslistamenn elska að kanna hið ómögulega, taka áhættur og finna óvæntar leiðir til að leika sér með ólíklegustu hluti. Hvað gerist ef þú leyfir 12 sirkuslistamönnum að leika sér á róluvelli? Jú, þá gerast töfrar!

Sirkus Íslands frumsýnir í sumar nýju fjölskyldusýninguna Róló. Í sýningunni skyggnumst við inn í einn dag á róluvelli og hittum fyrir karaktera sem eiga leið um róluvöllinn.
Við fáum m.a. að sjá börn að leik, klifurkött og hóp af klaufskum bæjarstarfsmönnum.
Þessir karakterar eru þó ólíkir öðrum því allir eru þeir glæddir sérhæfðum hæfileikum sirkusheimsins og munu sýna áhorfendum ótrúlegar listir á róluvellinum.
Leiksviði sirkustjaldsins Jöklu verður umbreytt í róluvöll þar sem hversdagslegir hlutir á borð við frisbee-diska og bekki fá ný hlutverk í meðförum sirkuslistamannanna sem munu fá áhorfendur til að standa á öndinni.

Sýningin hefur verið í vinnslu í meira en ár og hafa sirkuslistamennirnir æft upp nýjar sirkuslistir fyrir sýninguna sem ekki hafa verið sýndir hérlendis áður.
Má þar t.d. nefna jafnvægislistir á hjóli, smá-cyr hjól og sippubandslistir. Að auki munu áhorfendur fá að sjá grippl, húllahringi, trúðsleik, kínverska súlulist á tveimur súlum, akróbatík, cyr-hjól, jafnvægislistum og reipiloftfimleikum, svo eitthvað sé nefnt.

Fjölskyldusýningar Sirkus Íslands hafa notið gríðarlegra vinsælda síðustu ár enda eru sýningar sirkusins engu líkar. Sirkusinn hefur ferðast um landið allt með sýningar sínar síðustu ár og sýnt fyrir hátt í 45.000 áhorfendur. Fjölskyldusýningin Róló er stærsta sýning sirkusins til þessa og því óhætt að lofa mikilli skemmtun þar sem áhorfendur munu til skiptis gráta af gleði og standa á öndinni af undrun.

Sýningin er styrkt af menntamálaráðuneytinu.