• Sumarnámskeið

    April 23, 2018

    Sumarskóli í Laugardal byrjar um miðjan júni

    Sirkus Íslands býður upp á 5 daga sirkusnámskeið í sumar fyrir börn á aldrinum 8-13 ára.
    Námskeiðið kennir grunntæknina í hinum ýmsu sirkuslistum svo sem jafnvægislistum, línudansi, gripli (“juggling”), loftfimleikum, húllahoppi og fleira.
    Lögð er áhersla á gleði, fagmennsku og öryggi iðkenda með reyndum þjálfurum sem hafa æft og kennt sirkuslistir í áraraðir.
    Miðað er að því að allir nái árangri og komið er til móts við getustig hvers og eins.
    Kennt er í Ármanni Engjavegi 7, Laugardal.

    Tímabil námskeiða og kostnaður:

    11.júni – 15.júní kl.9:00 – 13:00 19.000 kr.
    26.júní – 29.júní kl.9:00 – 13:00 19.000 kr. (4 dagar)
    2.júlí – 6.júlí kl.9:00 – 13:00 19.000 kr.
    9.júlí – 13.júlí kl.9:00 – 13:00 19.000 kr.
    16.júlí – 20.júlí kl.9:00 – 13:00 19.000 kr.
    7.ágúst – 10.ágúst kl.9:00 – 13:00 16.000 kr. (4 dagar)
    13.ágúst – 17.ágúst kl.9:00 – 13:00 19.000 kr.
     Námskeið þurfa að vera greidd viku áður en þau byrja, afskráningar fyrir þann tíma eru endurgreiddar að fullu.

    ———–Skráning fer fram á www.sirkus.felog.is———–

    Hægt er að hafa samband hér fyrir frekari upplýsingar.